03febrúar

Íþróttir?

Byrja á fótboltanum?
Jú, sigur Man U á Arse er mér ofarlega í huga. Enda kom einhver Portúgalafjandi og birtist þarna í byrjunarliðinu. Einhver sagði mér að hann hefði skrifað undir samning í júní 2007 en ég hef aldrei séð hann áður. Mér fannst allaveg standa sig ágætlega pungurinn, þó svo að það hafi kannski hjálpað að Gael Clichy virðist ekki vera í neinu formi. En að velja litla tittinn sem mann leiksins? Er það ekki fullgróft? Sást eitthvað í þrívíddinni hjá Sky sem ég sá ekki eða eru þeir hreinlega þreyttir á því að gefa Wayne Rooney þetta alltaf?
Hvað ætliði samt að gera í Almunia? What ze fekk?

Chel$ki stóðu sig eins og hetjur í gær og náðu jafntefli við Hull. Stoltur af þeim. Ég vona að upp komist að allir samningar sem Man City hafa gert síðan Arabinn tók séu ógildir og Wayne Bridge komi aftur á Stamford Bridge...yrði það kannski of vandræðalegt?

Eitt sem mér finnst ég verða að nefna sem hefur kannski ekki fengið NÆGILEGA UMFJÖLLUN en það er mál Knattspyrnusambands Afríku að BANNA, já...BANNA landslið Tógó frá því að taka þátt í næstu tveimur Afríkumótum fyrir að hætta við þátttöku á síðustu stundu...útaf því að það var skotið á rútuna þeirra og markvörðurinn (sem var talinn látinn í fyrstu en það var víst aðeins ýkt) særður. Þrír létust og níu særðir. Áfram CAF! Fávitar. Og hverjir eru ennþá meiri fávitar? Jú...FIFA og þeirra helsti sauður Sepp Blatter. Þvílíkir bjánar að gera ekkert í þessu (allavega ekki ennþá, þegar þetta er skrifað). Þetta er óréttlátt að mínu mati, og heimskulegt.

Áfram Eiður Smári. Ákvað að vera karlmaður, sætta sig við að vera búinn að gera hörmulega ákvörðun með að fara til Frakklands og flýja þaðan við fyrsta tækifæri. Jei. En The Sun var nokkuð fljótt að bjóða hann velkominn með því að saka hann um framhjáhald með fyrrverandi skvísunni hans Bridge...Terry...Mutu...?

Talandi um Terry. Á hann að segja af sér? Hver á að taka við? Rio Ferdinand (mætti ekki í lyfjapróf um árið), Steven Gerrard (barði plötusnúð því hann fékk ekki að heyra Barbie Girl), Frank Lampard (horfðu á hann, finnst þér hann ekki vera alger douchebag?)...any other takers? Sleppum þessu kjaftæði - fáum bara yfirmann fávitanna í hægri bakvörðinn aftur og gefum honum 100.landsleikinn...já, fáum Gary Neville aftur í landsliðið!

Adam Johnson greip tækifærið (og peningana) og fór til Man City. Haldiði að hann eigi eftir að fá að spila? Veit ekki. PENINGAR. Er ekki viss. En hann fær helling af peningum fyrir það! Var ég búinn að minnast á að hann fær örugglega miklu meiri pening hjá Citeh en 'Boro?

Brjálaður yfir að mínir menn á Ítalíu (Parma) seldu Kenýamanninn McDonald Mariga. Sorg.

Og yfir í körfuboltann...

Mínir menn í GSW halda áfram almennri skitu. Nellie (sem á að bera fram í sama tón eins og Seinfeld segir 'Newman' ) er ekki alveg að átta sig á að það er stundum gott að vinna fráköst. Honum finnst það bara ofmetið. Það er alltílagi að hafa trú á því að geta skorað helling af stigum en þegar þú getur ekki stigið út eða spilað vörn þá skiptir það ofboðslega litlu máli. Hvað vilja sumir gera til að bæta þetta upp?
Jú, þeir vilja fá Amar'e Stoudamire í liðið! Yeeeesssss....fáum mann sem er ríflega sjö fet og getur hreinlega fyrir sitt litla líf EKKI frákastað boltann! Hann átti 1 frákast á móti Dallas um daginn. Það var sóknarfrákast. Eftir hans eigið skot.
En þetta er alltílagi, við erum með 3 D-League gaura...meðal annars Tolliver (sem virðist ekki geta spilað vörn miðað við að menn á hæð við mig eru að troða í andlitið á honum í (hélt fyrst að ég væri að horfa á replay, en neeeeeeeii...það var bara ákveðið að gera þetta aftur fyrst að þetta heppnaðist svo vel rétt áður). Þegar Devean George er farinn að fá mínútur hjá liðinu þínu þá veistu að það er eitthvað í ólagi. Já, alveg rétt...það voru 10 manns meiddir á tímabili!

Væli um GSW hætt.

Byrjum að tala um All-Star liðin!
Vesturstart - Amar'e, Melo, Duncan, Kobé og Nash. Sem betur fer þá datt Nash inní byrjunarliðið núna í síðustu talningu...fólk hefur væntanlega áttað sig á því að Kínverjarnir mættu ekki eiga of stóran hlut í boltanum og valið rétt. Mikill léttir á að Tracy McGrady hafi ekki fengið að spila fleiri mínútur í All-Star leik en samtals á tímabilinu með Houston. Já, mér finnst McGrady ekki það spes. Duncan er besti PF allra tíma og því á hann bara að vera þarna! Alveg sama hvort einhver heiti Dirk...þeir munu hvort sem er spila circa jafnmikið í leiknum. Ef ég fengi að breyta einhverju...þá hefði ég vilja sjá Chris Kaman í stað Pau Gasol. Jájá, ég bíð eftir skítkasti frá Lakers-fá...meina aðdáendum. En Kaman er bara búinn að vera flottari! Þrátt fyrir að þjást af því að vera rauðhærður.

Austurstart - Howard, Garnett, Lebron, Wade og Allen Iverson. Hvaða djók er það? Iverson í byrjunarliðinu með þessa stattölu? Ekki einu sinni Michael Jordon yrði valinn með þetta! Algert bull. Heyrðu já, á meðan við erum að þessu...sleppum líka David Lee og leyfum Al Horford að fá stjörnuleik! Sorglegt. Vona að Lee verði valinn í stað Paul Pierce sem ég sá einhversstaðar að sé með meiddi, enda er David Lee töffari. Ég ætla hér með að starta 'David Lee til Golden State-hreyfingunni'. Hver er með?

Heyrðu já, íslenska handboltalandsliðið stóð sig svo víst nokkuð vel um daginn á EM. Til hamingju.
03. febrúar 2010 klukkan 18:26
Sindri Snær
Fótboltinn, Karfan, Heimska
Engin athugasemd
19desember

Kvikmyndagetraun - desember 2009 - fyrsti hluti.

Jæja - smá getraun. Enda kominn tími. Þetta er fyrsti hluti af fjórum. Eins og alltaf má ekki googla eða imdb eða þess háttar. Hún er einstaklega auðveldari en áður.

<!-- /* Style Definitions */ p.MsoNormal, li.MsoNormal, div.MsoNormal {mso-style-parent:""; margin:0cm; margin-bottom:.0001pt; mso-pagination:widow-orphan; font-size:12.0pt; font-family:"Times New Roman"; mso-fareast-font-family:"Times New Roman";} @page Section1 {size:612.0pt 792.0pt; margin:72.0pt 90.0pt 72.0pt 90.0pt; mso-header-margin:35.4pt; mso-footer-margin:35.4pt; mso-paper-source:0;} div.Section1 {page:Section1;} /* List Definitions */ @list l0 {mso-list-id:1012685694; mso-list-type:hybrid; mso-list-template-ids:1151344772 67698703 67698713 67698715 67698703 67698713 67698715 67698703 67698713 67698715;} @list l0:level1 {mso-level-tab-stop:36.0pt; mso-level-number-position:left; text-indent:-18.0pt;} ol {margin-bottom:0cm;} ul {margin-bottom:0cm;} -->
  1. Snilldin Drag Me To Hell markaði talsverð umskipti í lífi Sam Raimi sem kvikmyndagerðarmanns – afhverju?
  2. Umdeild breyting verður framkvæmd á næsta ári á Óskarsverðlaunahátíðinni þegar í fyrsta skipta verða 10 myndir sem hljóta tilnefningu sem ‘Besta Mynd’ – en nú er talað um að það þurfi nánast að sleppa einum flokknum vegna ekki nægra mynda sem koma til greina...hvaða flokkur er það?
  3. Liam Neeson er hinn nýji Laurence Olivier, Danny Huston er hinn nýji Jack Gwillim og Sam Worthington er hinn nýji Harry Hamlim – í hvaða heimi myndi þetta meika sense?
  4. John Belushi, Dan Aykroyd, Chevy Chase, Phil Hartman, Al Franken og jafnvel Bill Murray eiga hvað sameiginlegt?
  5. Wayne Rooney og Steven Gerrard segjast ekki dýfa sér, Bill Murray segist ekki leika í framhaldsmyndum...en eins og Gerrard og Rooney ljúga þá gerir Murray það líka...í hvaða tilfellum?

Go for it!
19. desember 2009 klukkan 16:41
Sindri Snær
Heimska, Schnilld, Kvikmyndir, Getraunir!
2 athugasemdir
11mars

Kvikmyndagetraunin mikla mars 2009!

Jæja, eftir langa bið...þá hef ég loxins ákveðið að gera kvikmyndagetraun! Ég hef einnig ákveðið að hafa smá þema...Óskars/Razzie-verðlaunaþema!
Stórkostleg þema, þó ég segi sjálfur frá.

BANNAÐ er að nota google, imdb, wiki eða whatever...aka bannað að svindla!

  1. Uwe Boll fékk á þessu ári sérstök verðlaun. Hann var einungis fjórða manneskjan í hópi fimm verðlaunahafa. Hvaða verðlaun eru þetta, og hverjir eru hinir fjórir verðlaunahafarnir?
  2. Ein manneskja hefur fengið 15 tilnefningar til Óskars fyrir leik í aðal-og aukhlutverki. Hver er það, og hversu oft hefur hann/hún unnið?
  3. Jessica Tandy var áttræð þegar hún vann Óskarinn loxins, en hver er elsta manneskjan til að vera tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik?
  4. Það liðu 55 ár frá því að Hamlet vann Óskarinn fyrir bestu mynd og þangað til LOTR: Return of the King fékk sömu verðlaun. Ein manneskja lék í þeim báðum, hver er það?
  5. Hvað eru Razzie-verðlaunin verðlögð á (circa) ?
  6. Hvað eiga Amy Irving og James Coco sameiginlegt?
  7. Meistarinn Sylvester Stallone á merkilegt met. Hann hefur 30 sinnum verið tilnefndur til Razzie-verðlauna og 10 sinnum unnið! Hann náði líka þeim merka áfanga að vera tilnefndur 9 ár í röð(og vinna 4 sinnum). En hann hefur ekki náð að slá met þeirra Ben Stiller og Eddie Murphy, eða vera tilnefndir 5 sinnum sama árið!!! Ben Stiller var tilnefndur sem versti aðalleikari fyrir fimm myndir árið 2004, á meðan Eddie Murphy fékk fimm tilnefningar fyrir Norbit (3 fyrir leik, ein tilnefning fyrir versta par og sú fimmta fyrir versta handrit). Satt eða ósatt? (Ef ósatt, hvaða fullyrðing er röng?)
  8. Hvað er EINA teiknimyndin í fullri lengd sem hefur verið tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta mynd?
  9. Myndin Cabaret með ógeðinu Lizu Minelli á merkilegt met, hvað er það?
  10. Dalton Trumbo vann tvær Óskarstyttur, en fékk þær ekki fyrr en tæpum fimmtíu árum seinna! Hver var ástæðan?
  11. Terminator 2 vann 4 Óskara af 6 tilnefningum...satt eða ósatt?
  12. Braveheart, LOTR: Return of the King og Slumdog Millionaire eiga samtals 24 Óskarsverðlaun af samtals 31 tilnefningum, en ekkert af þeim var tilnefnt í hvaða flokki?
  13. Sylvester Stallone hefur verið tilnefndur tvisvar til Óskarsverðlauna...satt eða ósatt?
  14. Félagi hans Arnold (Ah-nuld) Schwarzenegger á merkilegan heiður í sambandi við Razzie-verðlaunin og fékk verðlaun fyrir það að meira að segja árið 2005. Fyrir hvað fékk Ah-nuld verðlaun?
  15. Walt Disney átti 26 Óskara þegar hann dó...en hvað fékk hann margar tilnefningar?
Jæja, þið ættuð nú að geta komist í gegnum þetta án þess að svindla! Verðlaunin eru ekki af verii kantinum í þetta skiptið..! Fyrsta manneskjan til að koma með ÖLL svörin í EINU commenti vinnur!

Gúdd lökk!
11. mars 2009 klukkan 19:24
Sindri Snær
Schnilld, Kvikmyndir, Getraunir!
9 athugasemdir
06febrúar

Topp tónlist daxins í dag...

Já!
Ég segi það!
Ég veit að fólk les þetta eiginlega ekki neitt lengur, þannig að ég ætla að vera djarfur og bomba fram hérna kenningum um hvað er besta tónlistin í dag!

Bestu hljómsveitir heimsins í dag eru....

Black Keys.
Kings of Leon.
Cold War Kids.
Flogging Molly.
Eða já, svona sirca, og þá í þessari röð.

Og hérna er smá forsmekkur af þessum hljómsveitum.




Get a playlist!
Standalone player
Get Ringtones


Endilega tékkið á þessu...
06. febrúar 2009 klukkan 01:40
Sindri Snær
Tónlist, Schnilld
2 athugasemdir
02febrúar

Manudaxgledi!

Sit nuna a Stanstead, en er buinn ad eiga vaegast sagt serstakan dag.

Vaknadi i morgun og sa ad thad hafi snjoad agaetlega, ekkert serstaklega mikid svosem. Ju, Reykvikingarnir hefdu vaelt og skaelt og ekki getad keyrt neitt i borginni en thetta er eiginlega ekkert fyrir Nordurlandshetju eins og mig!
Nema hvad, eg kemst ad thvi ad lestarstodin naest hotelinu er lokud. Naesta stod fyrir utan hana er 20minutna labb i slabbinu. Svo tekur venjulega ferdin a Liverpool Street svona 40minutum lengur en hun atti ad gera. Svo til ad baeta ona thetta, tha er buid ad takmarka ferdir med lestinni til Stanstead. Thanning ad eg sleppti thvi ad skella mer i midborgina aftur og bombadi mer bara i lestina...

...sem lagdi af stad halftima of seint
...thvi ad lestin sem vid attum ad taka var bilud!
...svo biladi lestin okkar a fyrsta stoppi
...og thessi venjulega 40minutna ferd tok einungis 3 og halfan.
...en thetta er alltilagi, eg gat tekkad mig inn strax eda klukkutima FYRIR auglystan check-in tima
...eg aetla ad fa mer ad borda og skipta um sokka!

Gledi!

02. febrúar 2009 klukkan 17:12
Sindri Snær
Almennt, Sögur, Heimska
3 athugasemdir
22janúar

Jæja!

Ýmislegt sem ég ætla að bomba fram hingað núna...enda fyrsta færsla ársins!

Langar að byrja á að benda fólki á að skoða þessa frétt:
Tommi og Jenni á Hvíta Tjaldið...

Best finnst mér þessi hluti fréttarinnar:
"Kvikmyndatímaritið Variety segir að nýja myndin um köttinn Tomma og músina Jenna muni fjalla um það hvernig þeir kynntust og af hverju þeir urðu óvinir."

Já, með allri virðingu fyrir Tomma & Jenna (ég og pabbi erum helstu aðdáendur þeirra í heiminum), þá skil ég ekki alveg afhverju við þurfum að fá söguna bakvið þeirra slaxmál. Hefur einhver ykkar huxað: "Afhverju ætli Tomma er svona illa við Jenna" ? Fyrir utan náttla, bíddu...þetta er köttur sem langar að éta músina!
Ætli Tommi hafi gripið Jenna glóðvolgann í rúminu með konunni hans Tomma?

Svo langar mig ótrúlega að fólk kíki á þetta myndband.


Star Wars: Retold (by someone who hasn't seen it) from Joe Nicolosi on Vimeo.


Skemmtilegra fyrir þá sem hafa séð Star Wars  myndirnar, en að engu síður stórskemmtilegt myndband.

En annars er lítið að frétta af mér, ég er bara á fullu í skólanum og stefni á að klára loxins í vor. Einnig er ég búinn að vera duglegri að hreyfa mig, enda 11kg farin síðan í okt. Langar samt í meiri körfu, enda hnéin farin að halda. Ætla bara að halda þessu áfram, og er langtímamarkmiðið að ná mér undir 90kg-in.

Spörning um að fara að skella smá getraun hingað inn bráðum?
22. janúar 2009 klukkan 20:45
Sindri Snær
Almennt, Heimska, Kvikmyndir
1 athugasemd
17desember

Æðislegt...

Í dag var Paul Ince rekinn frá Blackburn. Ég er sosum alveg sammála þeim brottrekstri, enda Blackburn-liðið - sem Mark Hughes gerði fína hluti með - ekki getað skít í vetur. Þeir sitja á botninum með greyjið Jonno og WBA. Mér fannst ráðning Ince alltaf mjög sérstök, enda hafði hann ekkert sýnt sem stjóri fannst mér, hvað þá verðugt til þess að taka við Úrvalsdeildarliði. En það sem er kannski stórskemmtilegasti punkturinn við þetta allt saman að maðurinn sem er efstur á blaði til að taka við honum er GRAEME SOUNESS!
Graeme Souness!!
Er ekki alltílagi með þessa menn þarna í brúnni hjá Blackburn? Muna þeir ekki hvernig fór hjá þeim þegar hann var þarna síðast? Það var allt í skítnum, allir pissfúlir út í karlinn en sem betur fer þá ákvað Newcastle að það væri einstaklega heppilegt að fá hann í stað meistara Bobby Robson. Maður sem þarf að vera stærstur og mestur í klúbbnum og rekur aðra frá, og er engan veginn með stórkostlegan feril að baki....afhverju er hann strax nefndur ?

Ef maður skoðar þetta. Hann átti nokkra titla með Rangers, en hvaða þjálfari vinnur ekki titla með Rangers?
Hann átti "stórkostleg" 3 og 1/2 tímabil með Liverpool þar sem það kom bara einn FA-bikar í hús og 40% vinningshlutfall, eftir 2 áratuga sigurgöngu þá var hann hálfgert upphaf á hruni stórveldis.
Svo eftir það fer hann til Tyrklands og gerir allt brjálað.
Næst tekur hann við Southampton þar sem hann náði litlu meir en 29% hlutfalli, kaupa mann (Ali Dia) sem hann vissi ekkert um (George Weah átti að hafa hringt í hann Souness og viljað að frændi sinn kæmi til hans, og hann væri nú senegalskur landsliðsmaður)..."Weah" endaði á að vera umboðsmaður Dia, og sjálfur leikmaðurinn var talinn versti atvinnumaður heims eftir að hafa spilað heilar 21 mínútur sem "Bambi á skautasvelli"(kom inná sem varamaður á 32.mín og fór útaf á 53.). Dia kom til liðsins á föstudegi, spilaði þennan fræga leik á laugardegi, mætti á sunnudegi í meðferð á meiðslum og sást aldrei aftur í Southampton.
En hvað gerði Souness eftir þetta??
Hann bað um meiri pening til leikmannakaupa, enda klárlega var hann búinn að sanna hvað á að gera í þeim málum! Hann fékk það ekki og hætti.

Svo ætla ég varla að nefna skítinn sem hann gerði hjá Blackburn og Newcastle, þið litlu börnin ættu að muna eftir svoleiðis.

Jú, þetta yrði klárlega gaurinn sem ég vildi fá til félagsins sem ég held með. Ánægður að halda ekki með Blackburn.
17. desember 2008 klukkan 01:54
Sindri Snær
Fótboltinn, Heimska
3 athugasemdir
28nóvember

Hvað ef...

Shawshank Redemption hefði verið gerð 1983?

See more funny videos at Funny or Die
28. nóvember 2008 klukkan 14:39
Sindri Snær
Schnilld, Kvikmyndir
Engin athugasemd
27nóvember

NBA Stjörnuliðin?

Fór á NBA.com og valdi stjörnuliðin fyrir næstkomandi stjörnuleik sem verður í febrúar!

Austurliðið verður vonandi eftirfarandi:
Leikstjórnandi: Dwyane Wade
Skotbakvörður: Joe Johnson
Miðherji: Dwight Howard
Lítill framherji: Tayshaun Prince
Kraftframherji: Kevin Garnett

Vesturliðið verður vonandi eftirfarandi:
Leikstjórnandi: Chris Paul
Skotbakvörður: Stephen Jackson
Miðherji: Andris Biedrins
(Lítill) framherji: Tim Duncan
Kraftframherji: Amare Stoudemire

Þetta er að einhverju hluta öðruvísi en hefur verið í gegnum tíðina, en ekkert verri lið en hefur verið stillt upp áður! Ég veit að ekki margir hafa skoðun á þessu, en endilega bombið einhverju inn. Ég veit að margir vilja Kobe þarna inn, en mér er alveg sama. Jax er maðurinn!
27. nóvember 2008 klukkan 01:32
Sindri Snær
Karfan
3 athugasemdir
26nóvember

Versta mynd í heimi?



Hver ákvað að gera þessa mynd!?
26. nóvember 2008 klukkan 17:02
Sindri Snær
Heimska, Kvikmyndir
2 athugasemdir

Sindri Snær er...

Sindri Snær, klárlega ekki þú.

Auglýsing

Mæli með...

Tónlist:
Kings of Leon - Only By The Night
Black Keys - Attack & Release
Black Keys - Big Come Up
Black Keys - Rubber Factory
Black Keys - Magic Potion
Cold War Kids - Loyalty to Loyalty
Emilíana Torríní - Me and Armini
Metallica - Death Magnetic
Mammút - Karkari
KK - Svona eru menn

Kvikmyndir:
Death Race
Eagle Eye
Feast
Meet Bill
Quantum of Solace

last.fm



Könnun

Kreppa er...

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...